Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

hvenær er komið nóg?

Nú ætla ég mér ekki að fara að tjá mig efnislega um málefni Byrgisins en mér er spurn, hvenær nóg er orðið nóg.

 Þá á ég við fréttaflutning af þessu blessaða máli. Mér persónulega er sama hvort að Gummi hafi kært eða ekki kært, finnst bara að nú eigi lögreglan og dómskerfið ( ef það fer svo langt ) að fá að fjalla um þessi mál.

Held að mörgum finnist nóg komið í þessari umfjöllun


mbl.is Segir Guðmund ekki geta kært fyrr en hann hafi séð kærurnar gegn sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Noh.....bara vinsæll......

Ég er kominn á lista þeirra sem eiga vinsæl blogg hér á mbl.is. Það eitt og sér finnst mér merkilegt. Maður hlýtur þá að setja sér það markmið að vera þar áfram.

 

Spurning hvernig maður fer að því?


Já á bara að nudda þessu framan í mann!!!

Það er greinilegt að danirnir eru ekki góðir winnerar.

En mikið er ég samt rosalega stoltur af strákunum okkar og finnst þetta flott, vissulega hefði verið æðislegt ef við hefðum náð að komast í undanúrslit en það kemur annað mót eftir þetta og við erum með ungt og gott lið.

 Sorglegt að lesa viðtölin við strákana í fréttablaðinu í dag, finn mikið til með þeim. Sérstaklega var sorglegt að lesa viðbrögð Guðjóns Vals þar sem hann segist varla hafa áhuga á að spila handbolta. Vissulega eru þetta vonbrigin að tala og það er helst í þeirri setningu þar sem maður skilur hvað þetta er sárt fyrir þá.

 En eins og ég sagði í gær........nú höldum við bara áfram, styðjum liðið og vonandi ná þeir 5 sætinu. Ef ekki að þá bara gera þeir betur næst, eða eins og sagði í laginu

" við gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta" og þá er ekki hægt að kvarta


mbl.is HM: Íslenskt hugvit á bak við sigurmark Dana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í blíðu og stríðu!!!!

Þetta var ógeðslega súrt, en við getum samt verið stolt af strákunum okkar. Þeir stóðu sig rosalega vel og mátti ekki litlu muna og eiginlega var þetta bara spurning um heppni og ekkert annað!!!

Snorri Steinn brilleraði í leiknum en eins og hann orðaði það sjálfur er það ekki ljós punktur í þessu, en mikið stóð hann sig samt vel:)

Nú er bara að halda áfram og ná 5 sætinu á þessu móti og ekkert annað.

Ég er allavegna ekki hættur að styðja þá heldu styð ég þá

Í Blíðu og Stríðu!!!!!


mbl.is Draumurinn úti í Hamborg - Danir sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kaka.is

Endilega skoðið þessa síðu hér http://www.kaka.is

 Það virðist vera ótrúlegt hvað hægt er að gera í þessum bransa.......og ódýrt og gott í þokkabót. Við gáfum tengdó ammælisköku með mynd af henni fyrir 20 árum á kökunni um daginn, og sló hún virkilega í gegn


Magnað!!!!

Það er nú ekki lítið sem er búið að tala um hvað skipulagning er góð á þessu móti og síðan kemur í ljós að þeir eru bara búnir að klúðra miðamálum........

 

En vonandi að þeir nái að redda þessu því ekki veitir af stuðningnum i höllinni við liðið


mbl.is Rofar til í miðamálum Íslendinga í Hamborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamlegt.

Ég er ánægður með þennan tón hjá fyrirliðanum. Ég hugsa að íslendingar margir hverjir séu búnir að ákveða að nú erum við komnir í undanúrslit, en það er ekki svo.

Danirnir eru sterkir og við höfum átt í erfileikum með þá og megum ekki missa okkur í draumórum. Einnig verðum við að muna það að hvernig sem fer að þá styðjum við þá í blíðu og stríðu

 

Endurtek....Í blíðu og stríðu


mbl.is Ólafur Stefánsson: Megum ekki tapa okkur í draumum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður hundur farinn

Bassi einn mesti og besti hundur sem fíknó hefur haft í sinni þjónustu hvarf úr þessu lífi um helgina. Þeir Bassi og Þorsteinn ( eigandi Bassa ) komu í heimsókn til mín með starf sem ég hélt utan um og voru með fræðslu og "skemmtiatriði" og hundurinn sló hreint alveg í gegn hjá krökkunum.

 Yndisleg skepna í alla staði


mbl.is Fíkniefnaleitarhundurinn Bassi allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danskurinn hræddur

Á reyndar ekki von á því að þeir séu hræddir danirnir. En ég satt best að segja veit ekki hvort strákarnir vioru heppnir að lenda á móti Dönunum......danirnir eru sterkir og síðasti leikur þessara liða endaði með jafntefli.

 

En ég vona að ég muni syngja af gleði á morgun..........og horfi stoltur á strákana sigra leikinn með glans


mbl.is HM: Fyrrum Framarinn Per Skaarup hrósar íslenska liðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Samfylkingin - Jón Baldvin????

Jón Baldvin Hannibalsson fór mikinn í Silfri Egils í gær og varð fokillur þegar talið barst að fylgi samfylkingarinnar og viðraði meira að segja þá skoðun að stofna ætti nýjan flokk.

 Nú er það svo að ég er algjörlega ósammála Jóni Baldvin og finnst hann hafa gengið aðeins of langt, spurning hvort að hann hafi talað áður en hann hafi hugsað? Vissulega er staðreyndin sú að staða samfylkingarinnar í skoðunarkönnunum er ekkert til þess að hrópa húrra fyrir, en ef málið er skoðað er það svo að úrtakið er lítið og lítið um svörun.

 Samfylkingin er að ná vopnum sínum og það er svo sannarlega ekki gott mál þegar einn af fyrrum leiðtogum jafnaðarmennskunar á Íslandi kemur fram og nýðir forystuna niður. Reyndar virðast margir á því að það sé allt Ingibjörgu Sólrúnu um að kenna það sem miður fer, en ISG er bara formaður, hún er ekki flokkurinn. Ég man eftir því að þegar hún var borgarstjóri að þá var talað um hana sem óvefngjanlegan leiðtoga og frábært efni og ég veit ekki hvað og hvað.

 En ég get verið sammála Jóni Baldvin í því að það er óviðundandi að núverandi ríkisstjórn sitji áfram....það bara má ekki gerast. Sjálstæðisflokkurinn er orðinn útúr sýktur af völdum og græðgi og blindi á það sem er rétt og mannsæmandi. Þeir sjá ekki mistök sín og þar af leiðandi neita að horfast í augu við staðreyndir.

 Tökum dæmi: Nú er búið að eyða ég veit ekki hvað mörgum milljónum í þetta blessaða baugsmál. Því hefur verið hent út úr dómssölum ítrekað og menn sýknaðir og allt bendir til sakleysis þeirra....og það sætir enginn ábyrgð og enginn dreginn til saka innan stjórnkerfisins. Björn Bjarnasson tjáir sig ítrekað um þessi mál og um "baugsmiðlana" og hvetur sína menn áfram í óvinanndi baráttu.....einhver þarf að sæta ábyrgð og hver er ætti það að vera annar en Björn Bjarnasson yfirmaður dómsmála og allri þessir háu herrar hjá ríkislögreglustj.

 Ég nenni ekki að tala um ílla unnin störf framsókn....þeir sjá vel um það sjálfir blessaðir.

 

En áfram samfylkingin og áfram ISG


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband