Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Óskiljanlegt

Nú er ég harður stuðningsmaður ÍA, án nokkurs vafa. En ég á erfitt með að skilja ákvörðun Óla Jó að setja Stefán Þ. Þórðarsson í landsliðið. Og það segji ég án þess að vera að lasta Stefán, ég tel að Tryggvi Guðmunds eða Veigar Páll eigi meira skilið að vera þar heldur en Stefán.....

 

Mín skoðun


mbl.is Breytingar vegna landsleiks við Wales
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúðkaup í júlí og heitasta bandið spilar

Amm.....er víst að fara að gifta mig í júlí.......á morgun er ár frá æðislegri stund sem ég og Beta áttum í sundlaug í Lasko, Slóveníu, en þá bað ég hennar. Og við ætlum s.s. að gifta okkur í Júlí, athöfnin verður fyrir norðan og veislan fyrir sunnan. Í veislunni verður heitasta bandið í bænum mun spila fyrir dansi....... Tékkið á bandinu Hitakútur á heimasíðunni http://www.myspace.com/hitakuturband

Hitakútur....heitasta bandið í bænum með nýtt lag

Þetta er lagið G-era með hljómsveitinni Hitakút. Þetta er lag með miklum og góðum minningum fyrir mig, en ég heyrði það fyrst hjá höfundinum Grjóna árið 2004 á farfuglaheimilinu í Þórshöfn í Færeyjum.....getið einnig nálgast það frítt á http://www.tonlist.is/News/ViewNews.aspx?NewsID=289

Til minningar um góða vinkonu!

Ég hvet ykkur öll til þess að fara inn á þessa síðu http://www.styrktarsjodursusie.is/ og leggja ykkar af mörkum í baráttunni gegn eiturlyfjavandanum......

 Þetta er sjóður var stofnaður til minningar um hana Susie sem lést langt um aldur fram á síðasta ári.

 Leggjið ykkar af mörkum


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband