Betri en FH?

Skondið commment Ásthildar um að kvennalandsliðið sé það besta á landinu....vissulega er það betra en karlalandsliðið en efast um að það myndi vinna meistaraflokk FH í karlaknattspyrnunni.

 

En annars hvet ég alla til að fara á völlinn og hvetja stelpurnar og vonandi ná þær góðum úrslitum og komast á EM


mbl.is Ásthildur Helgadóttir: „Erum besta íþróttalið á landinu eins og er"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit ekki hvaða Ásthildur að hugsa...svo langt frá sammála þessu.

Besta liðið er klárlega landsliðið í handbolta...

Þetta er ekki skondið comment, heldur heimskulegt comment hjá henni. Langt frá því að vera besta íþrótta liðið á landinu. Landsliðin í fótbolta komast heldur aldrei áfram í þessum keppnum sem segir margt.

En til að hafa þetta stutt, þá er umfjöllun um fótboltan fáranleg þar sem þau geta í fyrsta lagi ekki neitt. Og þar sem handboltinn er alltaf skilin út undan. Virðist eins og þjóðin taki sig bara saman þegar íslenska landsliðið í handbolta er að keppa á stórmótum en gleymist þar á milli.

aesti (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 16:24

2 identicon

Þetta er alveg rétt hjá Ásthildi. Landslið kvenna í knattspyrnu er klárlega betra en öll önnur knattspyrnulið á landinu og sennilega líka betra en öll handknattleikslið.

hee (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 16:31

3 Smámynd: Matthias Freyr Matthiasson

Ég reyndar er að mörgu leyti alveg sammála þér í þessu......en það er því miður varla hægt að bera þessar greinar saman......en Íslenska landsliðið í handbolta á svo sannarlega skilið meiri umfjöllun og stuðning

Matthias Freyr Matthiasson, 15.6.2007 kl. 16:32

4 identicon

Kvennaliðið er klárlega besta lið landsins innan sinna raða, um það þarf ekki að deila.  Ekki bera sama epli og appelsínur þótt hvoru tveggja eru ávextir.  Þess utan treysti ég þeim til að leggja FH að velli, hvar sem er og hvenær sem er.  Kvennalandslið Íslands er á heimsmælikvarða í kvennaknattspyrnu, það er enginn að tala um handbolta eða blak eða körfubolta eða...

Ég vísa því allri heimsku til föðurhúsanna.

Stelpurnar rúla !!!  Mætum á völlinn

Geir Hólmarsson (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 17:06

5 Smámynd: Sigurjón

Köllum þær ,,Stelpurnar okkar".

Sigurjón, 17.6.2007 kl. 03:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband