Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Klukk-aður af Kittý Sveins!

Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina:

Forstöðumaður menningarhúss ungs fólks

Æskulýðsfulltrúi

Ruslakall

Meðferðarráðgjafi

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:

Lotr 1,2,3

Shawshank Redemtion ( eða hvernig þetta er skrifað )

American History X

Börn/Foreldrar

Mýrin

Brúðguminn....og listinn er bara lengri

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Hafnarfjörður

Reykjavík

Akranes

Hveragerði

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Lost

The big bang theory

How i met your mother

Friends

Arrested development

30 Rock.....og listinn er miklu miklu lengri

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríjum:

Ítalía

Danmörk

Slóvenía

England

Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan bloggsíður:

Facebook

mbl.is

visir.is

eyjan.is

Fernt matarkyns sem ég held uppá:

Kjúlli

Humar

bananastangir ( nammi )

pönnukökur

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

Fréttabl

mogginn

monitor

andrés önd/syrpan

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:

London

New York

Uppí rúmi

Argentínu Steikhús

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Superbeta

Bakemono

Mama G

Jóel Sæm


Mbl að standa sig í að segja frá.....

"Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, er reiðubúinn að kljást við varaforsetaefni repúblikana, Söruh Palin, „maður á mann“ - þ.e. í körfubolta.Obama, sem nýtur hvert tækifæri sem gefst til að spila körfubolta á milli kosningafunda, segist hins vegar ekki vera reiðubúinn að keppa við Palin í skotfimi, en hún er þaulvanur veiðimaður.

Hún lítur út fyrir að geta eitthvað; hún spilaði í framhaldsskóla,“ sagði Obama um körfuboltahæfileika Palins, er hann var gestur í þættinum„

Ég veit að hún er góð skytta, og ég veit að ég myndi að öllum líkindum ekki fara með henni á skotsvæðið til að æfa skotfimina,“ sagði Obama og bætti við: „Ég held að hún sé betri skytta en ég. En ég held að ég ætti góðan möguleika á körfuboltavellinum hins vegar.“

Þess má geta að Palin fékk viðurnefnið „Sarah Barracuda“ í framhaldsskóla vegna frammistöðu sinnar með körfuboltaliði skólans."

Í hvaða þætti var Barack Obama gestur?

 


mbl.is Obama til í „maður á mann“ við Palin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessa konu vil ég sjá í framvarðarsveit samfylkingarinnar.

Hún Guðríður er glæsilegur fulltrúi samfylkingarinnar í kópavogi og hún hikar ekki við að slá til baka og gerir það með stæl

Ég sá á síðu Andrésar Jónssonar um daginn að hann var að velta Guðríði fyrir sér sem framtíðarleiðtoga samfylkingingarinnar. Þar er ég honum sammála.


mbl.is Vísar ásökunum bæjarstjóra á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gúa Dögg gaf pabba sín skyr í kvöldmat ( ljósmynd )

Ég og Gúa Dögg áttum notalegan kvöldmat saman í kvöld. Dóttir mín er þannig að hún er matargat og henni finnst rosalega spennandi að borða sjálf. Hún var búinn að borða "sinn" kvöldmat og eftirétt en var samt ennþá svöng þannig að ég náði í skyr dollu handa henni og leyfði henni að borða sjálf. Hún var það góð við pabba sinn að hún vildi endilega gefa honum með sér......eins og þið sjáið er hún í góðum fílíng

Gúa Dögg að gefa pabba að borða


Hann fór að mínum ráðum

Eða svona næstum því, Stefán er enn inni en Guðmundur er líka kominn inn. Frábært, til hamingju Guðmundur og nú er bara að negla á skotana
mbl.is Guðmundur í stað Ólafs Inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æi hvað mig langar mikið að vera leikari

Ég fór með skottuna mína á opinn dag í Borgarleikhúsinu í gær ásamt heilum helling af fólki. Bjóst ekki alveg við svona miklum fjölda. En þetta var rosa gaman allt saman og mikið að sjá. Gúa Dögg var alveg heilluð af tónlistinni sem var spiluð þarna og síðan sá hún Gosa og fannst hann voða sniðugur.

Við fórum á opna æfingu á Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarsson og var það rosa gaman að sjá það sem var þar í gangi, þótt að ekki væri verið að æfa senu eða þvíumlíkt.

EN það sem mér fannst líka gaman að sjá að uppi á sviðinu voru 3 einstaklingar sem ég var með í lokahóp í inntökuprófunum í LHÍ fyrir 5 árum síðan. Þau s.s. komust inn og kláruðu námið sitt með stæl og eru komin á svið í Borgarleikhúsinu að leika þar.

Það finnst mér frábært og hefði gefið mikið fyrir að fá að vera hluti af þeirra bekk, og eða bekknum sem komst inn tveim árum seinna en þar var ég einnig í lokahópnum. En hlutirnir æxluðust svona og ég er ekkert bitur yfir því. Finnst virkilega frábært þegar fólk fær draumana sína uppfyllta.

En við það að vera á þessari æfingu að þá kom upp þessi tilfinning sem kemur reyndar alltaf upp þegar ég kem nálægt leikhúsi og líka viðloðandi mig meira og minna allan daginn og það er sú tilfinnig að mig langar svo mikið að læra það að verða leikari.

Ég er búinn að sækja 5 sinnum um hér heima, í eitt skiptið ( það fyrsta ) kom ég illa undirbúinn og sýndi inntökunefndinni og þeim sem þar voru að sækja um, vanvirðingu með framkomu minni. 3 árum seinna sækji ég aftur um og komst þá í lokahópinn. Komst ekki inn en ákvað strax að sækja um árið eftir. Þá var ekki tekið inn þannig að ég þufrti s.s. að bíða í 2 ár. Það ár komst ég líka í lokahópinn en ekki inn.

Ætlaði síðan ekki að sækja um aftur en ákvað að gera það samt og gerði það og komst í annað þrepið. Það ár tók ég þá ákvörðun að ég ætlaði ekki að sækja um aftur. Sótti um í skóla í London og komst þar inn, á braut sem ég hélt að væri leikarabraut en er það ekki og hætti ég þar ( nenni ekki nánar útí það )

Því sótti ég um núna í ár og komst ég ekkert áfram.

En ég veit hvað ég get og er því ekki búinn að gefast upp.....þótt ég sækji reyndar ekki aftur um hér heima, heldur er stefnt erlendis.

En hver veit.....Paprika Steen virtasta leikkona Dana sótti um 13 sinnum áður en hún komst inn:=)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband