Ammælishelgin, humasúpa og meira til

Fimmtudaginn síðastliðinn ( 1 feb ) varð  ég 27 ára gamall. Átti góðan en þó stressandi afmælisdag og mikið gekk á hjá mér í vinnunni, mikið að gera en umfram allt var skemmtilegt eins og oftast.

Eftir að ég var búinn að vinna um níu leytið skellti ég mér heim, en þar beið mín heittelskaða og ólétta kærasta með pakka og mat frá nings. Fékk ég snoðunargræju og monopoly spil ( simpsons version ) í afmælisgjöf. Eftir að við vorum búin að borða okkur södd fórum við að gera okkur klár í ferðalagið okkar.

Leið okkar lá til Svignaskarðs ( rétt hjá Borganesi ) en þar vorum við búin að festa okkur bústað yfir helgina, aðstæður höguðu því þannig að við vorum ekki kominn þangað fyrr en um 12 leytið ( miðnætti ) og vorum heppin að fá lyklana hjá umsjónarmanni.

Restin af kvöldinu fór í að chilla áður en lagst var til hvílu. Á föstudeginum vöknuðum við seint og mikið var það gott að sofa út....eigum ekki von á því að það verði mikið um það í nánustu framtíð. Síðan var tekið til við það að undirbúa fyrir kvöldið en þá áttum við von á gestum í mat ( heilum 16 manns sem ætluðu að kíkja á okkur ) Þegar var farið að skoða, mátti sjá að lítið var um borðbúnað og búnað til matreiðslu og því þurftum við að fara á skagann og fá lánað ýmis tæki og tól hjá móður minni, einnig fengum við bók lánaða hjá mágkonunni og síðan uppskrift að eftirrétt hjá kokkinum.

Ætlunin var að hafa þriggja rétta kvöldverð, byrja á humarsúpu og síðan kjúllarétt í aðalr. og síðan eftirrétt. Keypt var í matinn og komið í bústaðinn og byrjað að undirbúa og elda. Í stuttu máli sagt, að þá var humarsúpan eitt það versta sem ég hef á ævi minni smakkað, ég satt best að segja skil ekki alveg hvernig ég fór að því að klikka á henni, þar sem að ég fylgdi uppskriftinni í einu og ölluFrown

En kjúllarétturinn tókst vel ( súpan nota bene var ekki í boði fyrir gestina, henni var hent áður en þeir komu ) og eftirrétturinn sló í gegn. Fékk ég nokkrar og fallegar gjafir og er ég rosa þakklátur fyrir þær. Þó var ég mest glaður með að sjá allann þann fjölda sem kom og eyddi þessari kvöldstund með okkur.

Eftir að gestirnir voru farnir að þá fórum við í pottinn og síðan í háttinn, eyddum við restinni haf helginni í kósýheitum par exelans.......bíltúrar...góður matur....nokkar ferðir í heitan pott....og ástin mín......gæti ekki verið betraGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband