Eru moggabloggarar leiðinlegir?

Það virðist vera að mikill hluti moggabloggaranna sé eingöngu að blogga til þess að geta verið á "topp" listanum við það að blogga. Mikið finnst mér það leiðinlegt!

 Ég byrjaði að blogga fyrir nokkrum árum, á blogspot og fannst það fínt. Síðan þegar blog.is opnaði í fyrra að þá ákvað ég að færa mig yfir.....var reyndar búinn að ákveða það að hætta að blogga en síðan bara breytust aðstæður og ég ákvað að halda áfram, enda hef ég stundum mikið að segja og stundum ekki.

 Þá fannst mér moggabloggið lang skemmtilegast og langskemmtilegasta formattið en nú er ég komin með hálfgert ógeð....það er uppfullt af fólki sem eru svo viss um að það sé svo frábærir pennar að allir verði að fá að lesa snilld þeirra. Vissulega eru nokkrir sem hægt er og gaman er að lesa, eins og til dæmis hann Jón Steinar vinur minn en skrif hans eru mikil snilld og gaman að lesa þau. En þegar fólk er farið að "blogga" eina og eina setningu og tengja það við frétt til þess eins að komast á "toppinn" að það fer í taugarnar á mér.

Eins og staðan er í dag að Þá les ég frekar EYJUNA ( http://www.eyjan.is ) eða vísi.is heldur en mbl.is því að fréttirnar þar eru ekki uppfullar af besserwissum.

Annars er ég í góðu skapi og er bara farinn að telja niður þangað til að dóttirinn kemur í heiminn

 

bæðevei....ég ætla í röð í kvöld til þess að kaupa Harry Potter bókinaCool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Örn Sveinbjörnsson

Heyr heyr!

Davíð Örn Sveinbjörnsson, 23.7.2007 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband