Mbl að standa sig í að segja frá.....

"Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, er reiðubúinn að kljást við varaforsetaefni repúblikana, Söruh Palin, „maður á mann“ - þ.e. í körfubolta.Obama, sem nýtur hvert tækifæri sem gefst til að spila körfubolta á milli kosningafunda, segist hins vegar ekki vera reiðubúinn að keppa við Palin í skotfimi, en hún er þaulvanur veiðimaður.

Hún lítur út fyrir að geta eitthvað; hún spilaði í framhaldsskóla,“ sagði Obama um körfuboltahæfileika Palins, er hann var gestur í þættinum„

Ég veit að hún er góð skytta, og ég veit að ég myndi að öllum líkindum ekki fara með henni á skotsvæðið til að æfa skotfimina,“ sagði Obama og bætti við: „Ég held að hún sé betri skytta en ég. En ég held að ég ætti góðan möguleika á körfuboltavellinum hins vegar.“

Þess má geta að Palin fékk viðurnefnið „Sarah Barracuda“ í framhaldsskóla vegna frammistöðu sinnar með körfuboltaliði skólans."

Í hvaða þætti var Barack Obama gestur?

 


mbl.is Obama til í „maður á mann“ við Palin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

„Mbl að standa sig í að segja frá.....“

Fleiri þyrftu nú að athuga sinn gang, amk. ef marka má málfarið á fyrirsögn bloggfærslunnar; en þar ríður andskotans eraðisminn húsum.  Slíkt málfar hefði Þórbergur sálugi kallað annaðhvort flatneskju eða lágkúru.

tobbi (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 19:13

2 Smámynd: Matthias Freyr Matthiasson

Já það má vel vera Tobbi að ég megi bæta málfar mitt. En ég er þó ekki opinber fjölmiðill og því leyfist mér að skrifa á minn hátt.

Þórbergur er ofmetinn!

Matthias Freyr Matthiasson, 7.9.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband