Breytingar + eineltishugsanir
29.8.2008 | 22:11
Ákvað eftir að hafa haft sama lookið á þessari síðu frá opnun fyrir tveim árum síðan, að breyta til. Það var annað hvort það að breyta lookinu eða hætta alveg að blogga.
Ég tók s.s. þá ákvörðun að halda áfram að blogga og ætla að reyna að vera virkari núna en síðustu mánuði.
Það er ýmislegt að gerjast í hausnum á mér þessa daga. Eftir viðtalið sem tekið var við mig í blaði Regnbogabarna ( en hægt er að lesa viðtalið hér á þessari síðu ) að þá er ég búinn að vera með það í hausnum á mér að setja sögu mína niður á blað, .þ.e.a.s. bók. Er að skoða það þessa dagana m.a.
Athugasemdir
Líst vel á það Matti. Kýla á það bara að gefa út bók
Mama G, 31.8.2008 kl. 21:22
Já gott að þú hélst áfram að blogga..
Ég missi klárlega ekki af neinu þar sem að þú virðist alltaf koma tvöfaldur inn í bloggvina kerfið mitt ;) hehe
Kittý Sveins, 2.9.2008 kl. 23:32
Hvar er hægt að lesa viðtalið? Endilega sendu mér link á það, langar mikið að lesa.
Kveðja
Gerða
Gerða frænka (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 08:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.