Kunna moggamenn ekki að skrifa?

Skemmtilegt misræmi í textanum hjá þeim. Hér segir

"Leik- og söngkonan Jennifer Hudson mun brjóta blað í sögu bandaríska tískutímaritsins Vogue þegar hún birtist á forsíðu þess í næstu mánuði, en hún verður þá fyrsta þeldökka söngkonan sem prýðir forsíðuna. Hudson, sem hefur slegið í gegn í kvikmyndinni Dreamgirls, mun vera á forsíðu svokallaðs „Power Issue“ blaðs í mars."

En síðan neðar í greininni segir þetta

"Hudson fetar þar með í fótspor sjónvarpskonunnar Opruh Winfrey og leikkonunnar Halle Berry og verður aðeins þriðja þeldökka stjarnan sem prýða mun forsíðu tímaritisins"

 Humm....aðeins að skoða þetta mogga menn


mbl.is Jennifer Hudson brýtur blað í sögu Vogue
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja, ekki er von að keraldið leki...

Eiríkur Kjögx (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 13:14

2 identicon

ruglukollur....er hún ekki fyrsta dökka söngkonan ?  Oprah er tv kelling og Halle berry er leikkona - ekki satt ???

Syrmir Gunnarsson (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 13:21

3 Smámynd: Matthias Freyr Matthiasson

Ok....kannski hægt að snúa þessu þannig, en þá er hægt að benda á það að Jennifer er líka leikkona eins og Halle Berry

Matthias Freyr Matthiasson, 13.2.2007 kl. 13:32

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ophra er líka leikkona.  Fékk Óskarsútnefningu fyrir The Colour Purple, sælla minninga.   Að þetta brjóti blað í sögu Vouge er svolítið stórkallalegt og týpísk ekkifrétt. 

Væntanlega var líka brotið blað í sögu Morgunblaðsins með að birta fyrstu frétt um þeldökka söngkonu á forsíðu þessa merka menningarrits. 

Jón Steinar Ragnarsson, 13.2.2007 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband